
Ráðningarferlið
-
Ferlið
Ferlið hefst þegar fulltrúi frá fyrirtækinu þínu hefur samband við starfsmann í StarfX.
-
Óskir fyrirtækisins
Fulltrúi fyrirtækisins tilgreinir hvers konar starfskraft hann þarfnast og áætluð er lengd og tímasetningu ráðningar. Skoðuð eru hæfnisskilyrði og aðrir þættir sem tengjast starfinu, svo sem vinnutími og staðsetning svo eitthvað sé nefnt.
-
Samningur
Þegar samningsdrög hafa verið skoðuð og samþykkt þá hefst leitin af tilvonandi starfsmanni. -
Tímalína
Markmið okkar er að ljúka ferlinu frá samþykki fyrirtækisins þar til starfsmaður hefst störf innan þriggja vikna.
-
Upphaf leitarinnar
Í flestum tilfellum, þegar óskað er eftir starsmanni, bjóðum við viðskiptavinum okkar upp á marga möguleika til að velja úr.
-
Ferilskrár
Ítarlegur undirbúningur og rannsóknir eru lykilatriði. Við leitum að einstaklingum með bæði sérþekkingu og reynslu á sínu sviði. Að tryggja hæft starfsfólk er til hagsbóta fyrir alla aðila sem koma að þessu ferli.
-
Viðtöl
Við metum samskiptahæfni umsækjenda, sérþekkingu, reynslu, aðstæður og aðra þætti sem eru mikilvægir fyrir farsæla ráðningu. Að sjálfsögðu hefur fulltrúi fyrirtækisins tækifæri til að hitta væntanlegan starfsmann áður en endanleg ákvörðun er tekin. -
Atvinna
Ef fyrirtækið er ánægt er ráðningarsamningur undirritaður og upphafsdagur starfsmannsins ákveðinn. Fulltrúi StarfX mun sjá um alla nauðsynlega pappírsvinnu.
-
Íslensk kennitala og tryggingar
Um leið og ráðningunni er lokið sækjum við um íslenska kennitölu fyrir væntanlegan starfsmann og tryggjum viðkomandi bæði heima og á vinnustað.
-
Ferðalög, gisting, samgöngur og klæðnaður
Umboðsmaður hjá StarfX mun aðstoða nýja starfsmanninn við bókun og kostnað vegna flugferða, ef þörf krefur. Að auki mun StarfX útvega húsnæði, farartæki og vinnufatnað ef þörf er á.
-
Atvinnuleyfi
Við skráum starfsmanninn hjá Vinnumálastofnuninni og leggjum fram ráðningarsamninginn.
-
Upphaf vinnu
Þegar öllu ferlinu er lokið getur starsmaðurinn hafið störf.
-
Tryggingar og veikindi
Ef starfsmaður uppfyllir ekki væntingar vinnuveitanda ber Starf-x ábyrgð á að finna nýjan starfsmann. Vinnuveitandi ber ekki ábyrgð á kostnaði vegna veikinda starfsmanns. Við hjá StarfX munum útvega nýjan starfsmann ef þess er óskað.